top of page

SKILMÁLAR

1. SKILMÁLAR
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Nútrí Acaí Bar til neytanda hér eftir RVK-V ehf. (5408170220)  Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskiptinu á netinu.

2. SKILGREININGAR
Seljandi er RVK-V ehf. (kt. 540817-0220). Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikning.  Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára.

3. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila vörum í verslun RVK-V ehf. ef  varan er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með. Ef um gallaða vöru er að ræða skal hafa samband á nutri@nutri.is varðandi skil. Merkja skal hvort varan sé gjöf áður en greiðsla fer fram og  tilskildur skilamiði mun vera settur á vöruna sem tryggir örugg skil innan mánaðar frá kaupum vörunar. Ef um jólagjafir er að ræða er  tilskildur skilamiði settur á vöruna. Almennur skilafrestur á vörum eru 30 dagar. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda.  Ef vara reynist gölluð greiðir Nútrí fyrir endursendingu vörunnar.

4. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti ýmist 11% eða 24% og birt með fyrirvara um innsláttarvillur og áskilur RVK-V ehf. sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp.  Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.  Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Við upplýsum viðskiptavini okkar um ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum uppá að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg. Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Heilsuhúsið endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.

5. PERSÓNUVERND
Seljandi fer með allar upplýsingar sem algört trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti.  Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu. Til þess að styðja við þjónustu okkar eru upplýsingar um sölu í netverslun vistaðar í 40 daga og þá gerðar ópersónugreinanlegar. 

6. SENDINGARMÖGULEIKAR OG KOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.  

  • Pakki heim að dyrum - 1000 krónur

Frír sendingarkostnaður er ef pantað er fyrir 8000 krónur eða meira.

 

7.  AFHENDINGATÍMI
Afhendingartími er að jafnaði 2-5 virkir dagar eftir að pöntun er að fullu frágengin og er send með Íslandspósti. Heimsendingum á höfuðborgarsvæðinu er dreift af RVK-V ehf. samdægurs, eða degi eftir að pöntun hefur verið afgreidd úr netverslun. 

8. ÖRYGGI
Það er 100% öruggt að versla hjá Nútrí Health Bar netverslun.  Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay.

9. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Í netverslun Nútrí Health Bar er boðið uppá nokkrar greiðsluleiðir. Í boði er að greiða með öllum helstu greiðslukortum og millifærslu.

10. MILLIFÆRSLUR
Ef valið er að greiða með millifærslu er óskað eftir því að staðfestingu á greiðslu verði send á netfangið nutri@nutri.is

 

11. BANKAREIKINGUR:

0515-26-161650
kt: 550616-1650

Ef pöntun er ekki greidd innan tveggja daga telst pöntun ógild.

12. GREIÐSLUKORT
Mögulegt er að greiða með pöntun með öllum helstu kreditkortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Korta

13. LÖG UM VARNARÞING
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur

14. FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR

RVK-V ehf.
Háaleitisbraut 58-60
108 Reykjavík
Sími: 454-8000
Netfang: nutri@nutri.is
VSK no: 129581

15. STAÐSETNING NETVERSLUNAR

Nútrí Acaí Bar
Háaleitisbraut 58-60
108 Reykjavík
Sími: 454-8000
Netfang: nutri@nutri.is

bottom of page